Takk

Fólk er dýrmætasta persónulega auðlindin mín.

Það hef ég séð enn betur eftir að taka þátt í stjórnlagaþingskosningum. Á ákveðnum sprettum fannst manni maður vera einn í framboði og einn í heiminum og fylltist streitu sem því miður bitnaði á þeim sem stóðu manni næst. Í lok dagsins þá fann maður að allir voru með manni. Sú tilfinning er ótrúlega dýrmæt. 

Að finna stuðninginn, hvernig fólk stendur með manni alla leið, gefur sér tíma frá annasömum störfum til þess að ráðleggja manni, stendur úti með manni í frostinu um miðja nótt að tala við fólk um framtíð Íslands, kemur færandi hendi með kökur, kemur með blómakörfu, gjafir, leggur á sig mikla vinnu til þess að hjálpa manni, færir manni mat þegar maður sjálfur hefur ekki rænu á að hugsa fyrir slíku. Fólk sem gefur manni af sér og deilir með manni af tíma sínum sem er einnig dýrmætasta auðlind okkar allra. Sú auðlind er því miður takmörkuð og klárast hjá okkur öllum einn daginn.

Svona gæti ég talið lengi upp og lýst því hvernig fólk stóð við bakið á mér í þessu framboði. 

Þetta er það sem skiptir máli og sama hvernig fer þá er þetta eitt af því sem ég mun taka með mér og stinga í bakpokann minn áfram inn í lífið.

Varðandi kosningarnar almennt þá lít ég á þær sem sigur. Þetta snýst ekki bara um það hvað við fengum út úr þessu á nákvæmlega þessum tímapunkti. Þetta snýst um það að við framkvæmdum þetta og stigum með því fyrsta skrefið að nýrri og betri framtíð fyrir íslenska þjóð. Við getum svo tekið með okkur ómælda reynslu um það hvernig haga skuli slíkri kosningu þannig að öll þjóðin treysti sér með í þá vegferð í nánustu framtíð.

Með þessari færslu er ég þó fyrst og fremst að lýsa yfir þakklæti við þá ótalmörgu sem stóðu mér mér, höfðu trú á mér og lögðu mikið á sig fyrir mig. Það verður seint fullþakkað.

Takk.


mbl.is 36,77% kosningaþátttaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

maður á inni í bankanum Kidda mín ef maður hefur verið duglegur við að leggja inn. Þú leggur inn á vinabankann þinn oft á dag þannig þú áttir innistæðu fyrir öllu sem fólk gerði fyrir þig, það er bara þannig!

Til hamingju með fyrsta framboðið elskan. Þú fórst flott í gegnum þetta og af klassa.

hlakka til að taka með þér hitting þegar skólabrjálæðinu lýkur hjá mér

knús

Linda (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband