Föstudagur, 26. nóvember 2010
Lokaspretturinn
Að fara í framboð til stjórnlagaþings er ein af betri ákvörðunum mínum í lífinu. Vissulega hefur maður oft ekki vitað hvað maður ætti að gera í þessari kosningabaráttu eða hvað maður hafi hreinlega verið búinn að koma sér út í. Keyrt um göturnar og velt því fyrir sér hvort maður ætti að grípa þennan eða þennan og minna á sig? Velt því fyrir sér hvernig maður eigi að snerta þessi 220 þúsund manns sem eru á kjörskrá. Ég held að maður verði bara að treysta á það að hafa náð inn til þeirra sem deila svipuðum skoðunum og maður hafi einnig lifað þannig lífi að fólk þekki mann mestmegnis af góðu.
Fyrst og fremst vona ég að fólk taki þátt. Tækifærið sem skapast hefur núna er sögulegt og það er í raun okkar sem höfum viljað sjá breytingar í þessu samfélagi að nýta þetta tækifæri. Við megum ekki láta það renna eins og sand úr höndunum á okkur. Við þurfum að standa saman, taka umræðuna og komast að niðurstöðu um það hvernig samfélagi við viljum búa í. Hvernig getum við skapað samfélag sem okkur 318.200 líður vel í?
Ég hef lært alveg gríðarlega mikið á þessu framboði. Lært það hvernig er að vera í persónukjöri, hvernig á að setja upp síðu á Facebook, setja upp þessa heimasíðu, lært heilmikið um stjórnarskrána og velt fyrir mér grunngerð samfélagsins og svo margt margt fleira. Ég hef í þessu lært aðeins betur á sjálfa mig. Þess vegna geng ég óhrædd inn í lokasprettinn ég mun hvernig sem atkvæðin koma út úr talningavélunum aldrei tapa á þessu. Þó ég endi í 522 sæti þá hef ég unnið sigur fyrir mitt leyti
Við sem þjóð höfum líka lært heilmikið og verðum reynslunni ríkari næst þegar við förum í persónukjör. Fólk hefur tekið umræðuna á kaffistofum út um allt og þannig verður hin raunverulega breyting til. Hún gerist ekki bara með því að breyta texta á blaði. Hún verður með fólkinu sjálfu og breytingu á hugarfari þess og viðhorfum. Margir sem ekki veltu fyrir sér öðru en sínu nærumhverfi hafa núna kynnt sér vel málefni samfélagsins og láta sig þau varða.
Ég vil enda á því að þakka eins vel og ég get fært í orð öllum þeim sem hafa lagt á sig ómetanlega vinnu við það að tala mínu máli og kynna málstað minn um víðan völl. Eitt það dýrmætasta sem maður á í lífinu er fólkið sem umlykur mann og í svona baráttu finnur maður vel hversu dýrmætt það er. Það hefur einnig verið mér dýrmætt að finna stuðning frá fólki sem ekki þekkir mig persónulega og við það hef ég öðlast meiri trú á fólk almennt. Fólk er tilbúið að leggja á sig mikla vinnu við það að kynna sér málefni ókunnugs frambjóðanda og tala svo máli viðkomandi líki því það sem fram kemur.
Ég vil því enda á að segja TAKK.
Nýtum tækifærið á morgun og sköpum saman betra Ísland
Kristbjörg Þórisdóttir
frambjóðandi nr. 6582
www.kristbjorg.wordpress.com
Facebook: Kristbjörgu Þórisdóttur á Stjórnlagaþing
Ætlar fólk að kjósa? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:16 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.