Af hverju erum við svona vond?

Ég hef talsvert verið að velta fyrir mér ákveðnum afkimum í menningunni hér á landi eða réttara sagt ómenningu.

Hvers vegna erum við stundum svona vond hvert við annað?

Hvers vegna situr hópur fólks við tölvuna hjá sér og hrúgar inn rætnum, niðrandi og hræðilega ljótum athugasemdum um annað fólk undir eigin nafni, fölsku nafni eða nafnleynd. Gera þessir einstaklingar sér grein fyrir því að viðkomandi les stundum þessar athugasemdir eða ástvinir hans og þær særa og meiða?

Getur það verið að einhverjum líði betur sjálfum þegar hann hefur úthúðað annarri manneskju bakvið tölvuskjá? Manneskju sem viðkomandi telur kannski að hafi gert eitthvað á sinn hlut eða bara alls ekki? Er hægt að láta skoðun sína í ljós á málefnalegan hátt án þess að fara í niðrandi skrif um persónu viðkomandi?

Á hvaða vegferð erum við í þessu samfélagi þegar sumum þykir í lagi að skrifa megi nánast hvað sem er um opinberar persónur? Fólk eigi bara að þola það. Það fylgi bara starfinu. 

Á hvaða vegferð erum við þegar það þykir í lagi að grýta annað fólk með matvörum? 

Hvernig ætlum við að ala upp heilbrigð börn í svona umhverfi sem hafa þetta að fyrirmynd?

Hvernig getum við breytt þessu og hætt að vera vond hvert við annað?

Getum við byrjað á því að breyta okkur sjálfum og sjá hvað leiðir af því?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Góð spurning...ætli svarið liggi ekki í ansi mörgu...t.d...spilling...vantraust..frekja...yfirgangur...vanvirðing....og stjórnmálastéttin er ekki að sýna neitt jákvætt af þessu...mitt mat.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 12.10.2011 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband