Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvet ykkur til að lesa þessa grein!

http://www.vefritid.is/

Góð grein um Tíbet.

tibeski-faninn.png


Hvet ykkur til að horfa á þetta!

http://www.youtube.com/swf/l.swf?video_id=7B7NvIFj5AU&rel=1&eurl=&iurl=http%3A//i.ytimg.com/vi/7B7NvIFj5AU/default.jpg&t=OEgsToPDskKakKHdcjZpY27IrF43akP2&hl=en

Þarna sést mjög vel hversu lík náttúra Íslands og náttúra Tíbet er!


Hrós dagsins á Bjarni Harðarson alþingismaður

Bjarni Harðarson þingmaður okkar framsóknarmanna á svo sannarlega hrós dagsins.

Hann á hrós skilið fyrir að taka þetta mikilvæga mál upp í sölum Alþingis og koma því á framfæri á bloggsíðu sinni.

http://bjarnihardar.blog.is/blog/bjarnihardar/entry/500787/#comment1257570

 

Lesa umræðuna á Alþingi:

http://www.althingi.is/altext/135/04/l08140350.sgml

Hlusta eða horfa á umræðuna á Alþingi:

http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?lidur=lid20080408T140350&end=2008-04-08T19:13:13

Það er merkilegt hversu lítið hefur farið fyrir þessu hingað til þar sem um stórmál er að ræða og er þetta mál mjög fyrirferðarmikið annars staðar. Stjórnvöld margra landa hafa sent frá sér yfirlýsingar varðandi þetta mál. Ég  upplifi þetta eins og íslensk stjórnvöld ætli að reyna að þreyja þorrann og þegja þetta af sér þar sem það sé þeim ekki í hag að sýna stuðning með málefnum Tíbeta. Atkvæðið í öryggisráðið getur ekki verið svona verðmætt. Ekkert er verðmætara en mannréttindi og mannslíf. Það verður þá blóði drifið og illa fengið atkvæði í mínum augum.

Það þarf kjark til þess að standa svona í lappirnar gegn risaveldi eins og Kína og þann kjark höfum við.

Ekki það að ég tek undir með Bjarna. Málin eru eflaust betri núna en áður fyrr og það er margt gott um Kína að segja og eflaust eru þeir að vinna í sínum málum. En betur má ef duga skal.

Hins vegar eru staðreyndir á ferð hér varðandi mannréttindabrot þeirra og málefni Tíbeta sem er ekki hægt að horfa framhjá.

Leiðtogar heims verða að standa í lappirnar og nota þrýstiafl sitt til stuðnings Tíbet. Það getur það enginn annar. Núna er tækifærið með þeirri umfjöllun sem er í kringum ólympíuleikana.

Ég vona svo sannarlega að íslensk stjórnvöld hafi lært sína lexíu varðandi það að það vinnst aldrei neitt með því að ganga gegn sannfæringu sinni með því að reyna að koma sér vel við stjórþjóðir. Við eigum að hafa lært á þeirri reynslu. Gerum ekki þau mistök aftur.

Ég er stolt af því að vera framsóknarkona!


mbl.is Gere telur að Kína eigi við djúpstæðan vanda að etja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk stjórnvöld ættu að hunsa opnunarhátíðina á ÓL í Peking

Þetta virðist vera mál málanna í fleiri löndum en á Íslandi þó að íslensk stjórnvöld hafi ekki verið nógu hugrökk til þess að fara að ræða þessi mál í alvöru. Mín persónulega skoðun er sú að stjórnvöld allra landa eigi að hunsa opnunarhátíðina til að beita þrýstingi. Þessi umræða fer fram hér í Danmörku núna. Stjórnvöld eru pólitískir fulltrúar sem mæta í boði kínverskra stjórnvalda. Annað gildir um þá sem keppa á leikunum.

Íslensk stjórnvöld eru ekki að standa sig nógu vel í þessu máli að mínu mati. Þau munu líklega sjá eftir því síðar ef svo verður. Þau ættu að hafa lært af fyrri mistökum.

Fólk ræðir það að ekki eigi að blanda saman póliltík og íþróttum. Það má svo sem taka undir það en hins vegar þá eru ólympíuleikar risavaxinn viðburður sem teygir anga sína inn á öll svið mannlífsins. Ég hef hugsað þetta aðeins. Í rauninni hefði þessi umræða sem nú á sér stað átt að fara af stað þegar Kína fékk rétt á því að halda ólympíuleikana. Þeir hafa undirbúið þetta lengi og þegar ég var í Kína 2002 þá voru leigubílstjórar farnir að sækja námskeið til þess að læra ensku, það gekk hins vegar ekki betur en svo að það eina sem þeir gátu sagt var yes and no og þeir skildu ekkert.

Ég tel að menn hafi bara ekki áttað sig á því þá að þessi alda færi af stað. Þessi umræða opnaðist einhvern veginn ekki þá. Nú eru augu allrar heimsbyggðarinnar á Kína. Þetta er því kærkomið tækifæri til þess að vekja athygli á þessum alvarlegu málum sem annars hefði ekki gerst. Ég er því í dag nokkuð ánægð með það að ÓL verði í Peking. Ég held að þetta sé það besta sem gat gerst fyrir kínverskan almenning og Tíbeta. Kínverska gríman fellur smám saman þegar athyglin beinist öll að Kína. Það er nefnilega ekki endalaust hægt að setja upp leikrit, stýra umræðunni með því að loka á símasamband, net og stjórna fjölmiðlum auk allra annarra áróðurstækja sem eru notuð. Það er ekki hægt gagnvart allri heimsbyggðinni.

Því er gríðarlega mikilvægt að stjórnvöld taki skýra afstöðu í stað þess að láta bara sem ekkert sé. Núna er tækifærið til þess að hafa raunveruleg áhrif í stað þess að sitja í teboði kínverskra stjórnvalda á meðan saklaust fólk er myrt eða fangelsað fyrir það eitt að trúa á leiðtoga sinn. Ég myndi amk ekki geta drukkið slíkt te með hreina samvisku. Það er helber hræsni.

Auðvitað þurfa mótmælendur að passa sig að ganga ekki of langt og mótmælin mega ekki verða neikvæð. Hins vegar er ekkert að því að nota allar mögulegar leiðir til þess að sýna fram á stuðning við Tíbet eins og hún Björk okkar gerði á svo frábæran hátt á tónleikum sínum í Kína.

Fólk veltir því kannski fyrir sér hvers vegna ég skuli vera svona upptekin af Tíbet?

Það er staðreynd að Tíbet er langt í frá eini staðurinn í heiminum þar sem þarf virkilega að berjast fyrir ákveðnum mannréttindum og sýna stuðning. Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri Þroskahjálpar sagði eitt sinn á erindi sem ég heyrði hann flytja að maður yrði að velja sér bardaga. Það væri einfaldlega ekki hægt að bjarga öllum heiminum. Ég er algjörlega sammála. Ég hef verið í Tíbet og þá eygði ég ekki von til þess að þessi staða kæmi upp þeas að heimsbyggðin færi smám saman að opna augun varðandi Tíbet. Nú er tækifærið! Ég hef þráð þetta frá því ég kynntist fyrst sögu Tíbet og átti mér þann draum að heimsækja þetta land og sjá með eigin augum aðstæður. Það gerði ég og það staðfesti í raun fyrir mér hversu niðurnídd þjóðin er. Ég valdi mér fyrir mörgum árum síðan að berjast fyrir Tíbet. Ég vissi bara ekki hvar ég ætti að byrja? Því er ég að byrja hér. Og ég mun aldrei gefa neinn afslátt á Tíbet. Það er bara þannig. Þeir sem þekkja mig vita að þegar ég hef tekið skýra afstöðu í einhverju sem er mér hjartans mál þá verður mér ekki haggað.

Ég ætla því að berjast fyrir Tíbet og leggja mitt af mörkum svo lengi sem þarf og svo lengi sem ég lifi.

Ég er gengin í samtökin Vinir Tíbet og get með stolti sagt það að systir mín Aðalheiður Þórisdóttir er meðstjórnandi í þeim góða hóp og ég er því með þeim í huganum í því sem hópurinn er að gera en líka næstum því í eigin persónu þar sem hún er þar fyrir okkur báðar enda betri helmingurinn minn Wink.

 

 

 


mbl.is Mótmæla ólympíuleikunum í San Francisco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með daginn Sammi minn!

Sammi og Siv í SVÁnægjulegt að sjá að sá dagur sé runninn upp sem hann Sammi tekur sæti á þingi en hann tók sæti sem varamaður Sivjar Friðleifsdóttur í dag.

Sammi er drengur góður og það var einstaklega ánægjulegt að taka þátt í kosningabaráttunni með honum. Ég er spennt að heyra hversu snöggur hann Sammi var/verður í pontu!

Það er mikilll fengur að honum Samma. Þvílík orka sem hann hefur og hann nær alltaf að slá á létta strengi og manni leiðist sko ekki með honum Samma. Það voru ófá hlátrasköllin sem við tókum á flakkinu okkar síðasta vor. Það gefur lífinu gildi að geta haft svolítið gaman af hinum daglegu verkefnum og það er ekki síður mikilvægt þegar þau eru alvarleg og krefjandi.

Gangi þér sem allra best kæri Sammi.


mbl.is Tveir nýir varaþingmenn setjast á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur Tíbet!

Ég er vinur Tíbet og ég hef óskað eftir skráningu í samtökin. Ég hvet alla sem vilja láta sig mikilvægt málefni varða að fara á fundinn og/eða skrá sig í félagið. Leggjumst á eitt.

Lítið skref fyrir hvern mann en risastökk fyrir mannréttindi.

Ég fékk þetta bréf sent í dag.

Dear friends,

On Monday, a global day of action delivered the 1.5-million strong Avaaz Tibet petition to Chinese embassies and consulates worldwide. Click to see photos, and to urge your head of state to join the call for change: See photos and take action!


On Monday, thousands of people in 84 cities worldwide marched for justice for Tibet--and delivered the 1.5 million-signature Avaaz petition to Chinese embassies and consulates around the globe. (Click below for photos.) Avaaz staff have engaged with Chinese diplomats in New York and London, delivering the petition and urging action. And a growing chorus of world leaders is joining the call.

China is on the fence--quietly indicating an openness to talks with the Dalai Lama, while at the same time pressuring other governments to support its continuing crackdown. Each day, more leaders are speaking out--either for dialogue, or supporting the Chinese hardline. Click below to send a personal message to your head of government, urging support for dialogue with the Dalai Lama--and check out the photo gallery from Monday's day of action!

http://www.avaaz.org/en/tibet_report_back/12.php/?cl=71028545

Together, we've built an unprecedented wave of global pressure. The Avaaz petition is one of the biggest and fastest-growing global online petitions on any topic in history; since it launched on March 18, it has been signed by 100,000 people per day--an average of more than 4,000 per hour, day and night.

Politicians understand that there is power in numbers. We need to show them that they have more to gain by listening to their own people--and heeding the cry for help from Tibet--than by giving China a pass in the lead-up to the Olympic Games. Take action now

http://www.avaaz.org/en/tibet_report_back/12.php/?cl=71028545

We're privileged to be alive at a time when people anywhere can reach out and support people everywhere--instantly. If we have the power to make things better, we have a responsibility to act. Thanks for what you've done so far, for the people of Tibet and for a more humane world for all.

With hope,

Ben, Ricken, Graziela, Galit, Paul, Iain, Pascal, and the Avaaz team

PS - The more people sign the petition, the more powerful our call for change. We will hope to deliver it to the Chinese government again once we reach our target of 2 million signers. If you haven't already, please forward the email below to your friends and family, and urge them to sign the Tibet petition!

________ here's a message to forward to friends _________

Dear friends,

After decades of suffering, the Tibetan people have burst onto the streets in protests and riots. The spotlight of the upcoming Olympic Games is now on China, and Tibetan Nobel peace prize winner the Dalai Lama is calling to end all violence through restraint and dialogue--he urgently needs the world's people to support him.

China's leaders are lashing out publicly at the Dalai Lama--but we're told many Chinese officials believe dialogue is the best hope for stability in Tibet. China's leadership is right now considering a crucial choice between crackdown and dialogue that could determine Tibet's--and China's--future.

We can affect this historic choice--China does care about its international reputation, and we can help them choose the right path. China's President Hu Jintao needs to hear that the 'Made in China' brand and the upcoming Olympics in Beijing will succeed only if he makes the right choice. But it will take an avalanche of global people power to get his attention. Click below now to join 1.5 million others and sign the petition--and tell absolutely everyone you can right away--our goal is 2 million voices united for Tibet:

http://www.avaaz.org/en/tibet_end_the_violence/97.php/?cl=71028545

China's economy is dependent on "Made in China" exports that we all buy, and the government is keen to make the Olympics in Beijing this summer a celebration of a new and respected China. China is also a sprawling, diverse country with much brutality in its past. And it has good reasons to be concerned about stability -- some of Tibet's rioters killed innocent people. But President Hu must recognize that the greatest danger to Chinese stability and development today comes from hardliners who advocate escalating repression, not from those Tibetans seeking dialogue and reform.

We have presented the petition at protests, marches, rallies, and private meetings with Chinese diplomats around the world--and we will keep sending it as long as it keeps growing. Please forward this email to your address book with a note explaining to your friends why this is important, or use our tell-a-friend tool to email your address book--it will come up after you sign. The Tibetan people have suffered quietly for decades. It is finally their moment to speak--we must help them be heard.

With hope and respect,

The Avaaz team

Here are some links with more information on the Tibetan protests and the Chinese response:

"China softens Dalai Lama stand" -- Wen Jiabao calling for dialogue
http://www.telegraphindia.com/1080401/jsp/foreign/story_9081121.jsp

Dalai Lama expresses appreciation for world reaction, appeals for continued support; also sends appeal to the Chinese people:
http://dalailama.com/news.221.htm
http://dalailama.com/news.220.htm

China announcing support from governments around the world:
http://news.xinhuanet.com/english/2008-03/20/content_7829212.htm

Leaders across Europe and Asia starting to back dialogue as the way forward:
http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/asia-pacific/7300157.stm

Chinese Prime Minister attacks "Dalai clique", leaves door open for talks:
http://news.xinhuanet.com/english/2008-03/18/content_7813194.htm

Other Chinese signals:
http://timesofindia.indiatimes.com/China_looks_at_India_to_talk_to_Dalai_Lama/articleshow/2875142.cms
--------------------------------------------


mbl.is Stofnfundur Vina Tíbets
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðan daginn íslensk stjórnvöld!

Er einhver vaknaður á stjórnarheimilinu eða í þingheimi almennt?

Hvað er að frétta af vinnu ykkar og afstöðu varðandi málefna Tíbet?

Við þurfum að taka skýra afstöðu gegn þeim mannréttindabrotum sem framin eru í Tíbet af kínverskum stjórnvöldum.

Við eigum að afboða komu okkar á ÓL í Peking og sýna Tíbetum stuðning. Það er kominn tími til að beita kínversk stjórnvöld þrýstingi til þess að láta af ómannúðlegri ofbeldisstefnu sinni þar sem framin eru menningarleg þjóðarmorð og kúgun og ofbeldi beitt sem valdatækjum.

 

 

 


mbl.is Átök brutust út í Sichuan héraði í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórt skref

Þetta umfangsmikla verkefni sem lengi hefur staðið til en virðist loks vera að verða að raunveruleika þarfnast mikils og vandaðs undirbúnings.

Ég legg til að virkt samráð verði haft við fagfólk og fræðafólk á þessum sviðum m.a. fötlunarfræðina í H.Í. allt frá upphafi undirbúningsferils (sem er nú væntanlega hafið) og til langs tíma. Samráð þarf að auki að vera við notendur fyrst og fremst og aðstandendur og marga aðra aðila.

Nægilegir tekjustofnar verða að fylgja og ekki má gera sömu mistök eins og gerð voru þegar skólarnir voru fluttir yfir að dæmið sé ekki reiknað til enda og risastórir bakreikningar myndist.

Það er t.d. fyrirsjáanleg mikil breyting á komandi árum varðandi þjónustu við bæði fatlað fólk og aldrað þar sem stoðþjónusta mun að öllum líkindum taka við af stofnanaþjónustu. Það er að þjónustan og húsnæðið sé ekki endilega samhangandi þættir og þjónustan verði eftir fremsta megni notendastýrð. Þá fær notandinn fjármagnið (eða umbjóðendur hans) og ráðstafa því sjálfir í það að kaupa sér þjónustu. Þjónustan má ekki vera þannig að hún verði að fylgja ákveðnu þaki, ákveðinni steinsteypu þannig að ef þjónustuþörf breytist þurfi viðkomandi t.d. að flytja. Þjónustan á að geta verið einstaklingsmiðuð og sveigjanleg og geta tekið breytingum í takt við líf þess sem hana notar. Kerfið okkar er allt of þungt í vöfum í dag og stíft. Fólk á að geta búið í sinni eigin íbúð eða íbúð, sambýli eða öðru búsetuformi sem rekið er af öðru fyrirtæki og notað þjónustu úr ólíkum áttum.

Kostirnir við þessa yfirfærslu eru gríðarlega margir og um það eru held ég flestir sammála. Það hafa því miður ótal mál fallið á milli ríkis og sveitarfélaga undanfarin ár þar sem hvor aðili vísar á hinn. Nærþjónusta er langoftast talin vera betri þar sem hún á að geta verið sveigjanlegri og einstaklingsmiðaðri og styttri boðleiðir eru í því formi.

Ég óttast hins vegar mikið aðra þætti eins og það að tekjustofnar fylgi ekki nægilega vel með. Ég óttast það að þetta verði ákaflega erfitt fyrir minni sveitarfélög (þar þarf t.d. jöfnunarsjóður sveitarfélaga að koma inn). Ég óttast einnig því miður að þjónustan verði of ólík á milli sveitarfélaga og því geti sveitarfélög jafnvel meðvitað haft áhrif á það hvort fólk sem þarf á þessari þjónustu að halda flytjist í sveitarfélagið eða frá því eftir því hversu góð eða slæm þjónustan er. Hér þarf að koma inn einhver trygging og trúnaðarmenn fatlaðra og aldraðra þurfa að vera nógu margir og virkir hvað þetta varðar. Einnig þarf að vera einhver ákveðinn rammi á því hvað telst vera grunnþjónusta sem öllum sveitarfélögum verði skylt að veita. Það er sorglegt og ólíðandi ef sveitarfélög geta valið sér þegna með þessum hætti þar sem þessari þjónustu fylgja útgjöld en minni tekjur. Hér gæti jöfnunarsjóður spilað ákveðið hlutverk.

Ég gerði í starfi mínu í fjölskyldunefnd í Mosfellsbæ lauslegan samanburð á ferðaþjónustu fatlaðra og liðveislu á milli nokkurra sveitarfélaga og það er sláandi munur á þeirri þjónustu sem er í boði og við það er ekki hægt að una. Það er ekki hægt að sætta sig við slíkan mun á lífsgæðum og sjálfsögðum rétti og raunin er aðeins eftir því hvort þú býrð í Grafarvogi eða Mosfellsbæ, sitt hvoru megin við hólinn. Þjónustan var mun slakari í Mosfellsbæ en Grafarvogi. Einhverja línu verður að setja til þess að tryggja ákveðna þjónustu svo þessir hópar hafi raunverulegt val um það hvar þeir vilja búa og fólk þurfi ekki að flytja hreppaflutningum.

Að ótal mörgu er að huga og eflaust mun margt ekki koma í ljós fyrr en á reynir. Hins vegar er hér um stórt og spennandi verkefni að ræða sem á að geta verið jákvætt til lengri tíma ef undirbúningur er góður og vel er vandað til verka.

Ég ítreka það og vona að það sé þegar hafið að notendur sjálfir, hagsmunasamtök, aðstandendur, fræðafólk og fagfólk komi markvisst og virkt að öllum skrefum í ferlinu. Annars munu vera gerð stór mistök sem erfitt verður að leiðrétta þegar á hólminn er komið.

Einnig þarf að huga mjög vel að því hvernig flytja á þá gríðarlegu þekkingu sem skapast hefur og standa vörð um þann mannauð sem vinnur á þessum sviðum við yfirfærsluna.

Ég legg einnig til að við förum aðeins að fordæmi Dana hvað varðar þjónustu við fólk og leggjum meiri áherslu á það að fjárfesta í mannauðnum heldur en í dauðum hlutum og steinsteypu. Í einum leikskóla sem ég heimsótti var margt athugavert við ytra byrði skólans og sumt orðið lúið en þar störfuðu 6 fagmenn og 1 nemi og 2 ófaglærðir. Ég held að við Íslendingar séum oft of upptekin við það að eyða pening í það sem sést á pappír eða sést með berum augum en svo er ekkert eftir þegar á að fjárfesta í fólkinu sjálfu. Sú fjárfesting skilar arðsemi, ekki steinsteypan!

Ég læt þessar fáu hugleiðingar duga í bili en af nógu er að taka hvað þetta verkefni varðar.


mbl.is Samskipti ríkis og sveitarfélaga rædd á landsþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort er meira virði tíminn eða verndun jarðar?

Það virðist fara eftir því um hvern er rætt.

Einhver sagði: Eftir höfðinu dansa limirnir. Veit ekki alveg hvernig fer þegar allir fara að dansa eftir tvíhöfða ríkisstjórninni.

Kannski eiga sum mál bara við á pappír, ekki í raunveruleikanum?

Bendi ykkur á http://truflun.net/eggert/2008/04/03/einka%c3%beotan-arsutblastur-10-folksbila/

Mjög fræðandi pistill um umhverfismál.


Er þokan á gleraugum heimsbyggðarinnar að skýrast?

Nú eru kínversk stjórnvöld í vanda.

Með hverjum deginum sem líður fellur glæsitjaldið betur og betur og smátt og smátt koma í ljós mannréttindabrot þau sem teljast daglegt brauð þar í landi þegar augu umheimsins beinast að Kína.

Þetta er ekki heppilegt þegar á að setja upp glæsilega leiksýningu til að sýna heimsbyggðinni fram á allt annað en raunveruleikann.

Hvað ætli margir hafi verið fangelsaðir vegna slíkra glæpa síðustu ár?

Hvað ætli margir hafi verið myrtir vegna mótmæla gegn kínverskum stjórnvöldum?

Hvað er að heimsbyggðinni, hvers vegna er þoka á mannréttindagleraugunum? Eru þau kannski þakin blóði?

Það er ekki hægt að þvo hendur sínar af því að horfa framhjá þessu.

Það geta Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra  og íslensk stjórnvöld ekki heldur gert.


mbl.is Kínverskur aðgerðarsinni fangelsaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband