Laugardagur, 30. október 2010
Auðkennisnúmer mitt er 6582 :)
ég er ein þeirra sem er í framboði til stjórnlagaþings.
Ég hef mikinn og einlægan áhuga á samfélaginu á Íslandi sem og landinu sjálfu. Ég býð mig fram til þess að fá tækifæri til þess að láta gott af mér leiða og eiga þátt í því að byggja upp nýtt og betra Ísland. Íslenska þjóðin stendur á tímamótum. Það er okkar að ákveða í hvaða átt við viljum fara og við eigum val um okkar nánustu framtíð. Hvernig landi og samfélagi viljum við skila börnunum okkar og barnabörnum? Til þess að ná árangri þurfum við að finna sameiginlega hagsmuni heildarinnar og berjast saman fyrir þeim sem ein þjóð!
- HVERS VEGNA BÝÐ ÉG MIG FRAM?
Á Íslandi eiga allir að geta haft það gott. Í þeim erfiðleikum sem við mætum núna skapast sögulegt tækifæri til þess að endurskoða, læra og breyta samfélaginu til bjartrar framtíðar. Vönduð stjórnarskrá leggur grunninn að framúrskarandi samfélagi með öflugar grunnstoðir. Ég mun starfa með opnum huga, jákvæðni, krafti og metnaði sem fulltrúi þjóðarinnar á stjórnlagaþingi. Áhersluatriði mín eru m.a. mannréttindi, lýðræði, sjálfsákvörðunarréttur þjóðarinnar og þjóðareign á auðlindum. Einnig legg ég áherslu á þrískiptingu ríkisvaldsins, eflingu Alþingis og helstu stofnana þess. Ég hef það að leiðarljósi að gæðum lands, þjóðar og samfélags verði skilað vel til komandi kynslóða.
ÆVIÁGRIP
F. í Reykjavík 9. maí 1978. For: Þórir Guðmundsson (f. 17. nóvember 1936) vélgæslumaður og Bjarndís Eygló Indriðadóttir húsmóðir (f. 14. ágúst 1939 d. 26. janúar 1999). Systur: Guðrún Þórisdóttir (1969), Steinunn Þórisdóttir (1973) og Aðalheiður Þórisdóttir (1978).
MENNTUN
Stúdentspróf MR 1998. BA gráða í sálfræði frá Háskóla Íslands 2002. Diplóma gráða í fötlunarfræðum frá Háskóla Íslands 2006. Kandídatsnám í sálfræði síðan 2008, fyrirhuguð námslok í lok árs 2010.
STÖRF
Stuðningsfulltrúi í Gylfaflöt dagþjónustu fyrir fötluð ungmenni í sumarafleysingu 2009. Stuðningsfulltrúi á öldrunarheimili á Lokalcenter Skelager í Árósum í sumarafleysingu 2008. Forstöðumaður sambýlis hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík (SSR) 2004-2007. Deildarstjóri sama sambýlis 2003-2004. Stuðningsfulltrúi á sama sambýli 1999-2002. Starfsmaður á Kleppi 2003 í stuttan tíma. Ýmis sumarstörf samhliða námi m.a. garðyrkja, afgreiðslustörf í bakaríi, fiskvinnsla og blaðaútburður.
FÉLAGSSTÖRF
Varaformaður Landssambands framsóknarkvenna 2009-2011 (hef stigið til hliðar tímabundið vegna framboðs til stjórnlagaþings). Siðanefnd Framsóknarflokksins 2009-2010. Varamaður í nefnd um erlenda fjárfestingu síðan 2009. Áheyrnarfulltrúi í fjölskyldunefnd í Mosfellsbæ fyrir Íbúahreyfinguna síðan haust 2010. Í miðstjórn Framsóknarflokksins síðan 2006 (hef stigið til hliðar tímabundið vegna framboðs til stjórnlagaþings). Aðalmaður í fjölskyldunefnd í Mosfellsbæ fyrir Framsóknarflokkinn 2006-2007. Anima skemmtinefnd sálfræðinema 1999-2000.
Hef skrifað pistla og greinar um samfélagsmál í ýmis blöð.
AÐEINS UM MIG
Ég hef mikinn áhuga á manneskjunni og samfélaginu í sínni víðustu mynd. Á mörg áhugamál meðal annars hestamennsku, ferðalög, útiveru, líkamsrækt, samverustundir með fjölskyldu og vinum, að borða góðan mat og njóta hvers andartaks í lífinu.
Ég ferðaðist um Kína, Tíbet, Nepal, og Tæland í þrjá og hálfan mánuð haustið 2002.
Ég dvaldi í Árósum í Danmörku frá 2007-2009 við framhaldsnám í sálfræði.
FJÁRHAGSLEGIR HAGSMUNIR OG TRÚNAÐARSTÖRF
1. Launuð stjórnarseta í einkareknum eða opinberum félögum. Staða og félag skulu skráð.- Engin
- Varamaður í nefnd um erlenda fjárfestingu. Hef setið einn fund.
- Engin
- Engin
- Engar
- Engar
- Engar
- Engar
a. Verðmæti hlutar nemur að markaðsvirði meira en einni milljón króna miðað við 31. desember ár hvert.
b. Hlutur nemur 1% eða meira í félagi, sparisjóði eða sjálfseignarstofnun þar sem eignir í árslok eru 230 millj.kr. eða meira eða rekstrartekjur 460 millj. kr. eða meira.
c. Hlutur nemur 25% eða meira af hlutafé eða stofnfé félags, sparisjóðs eða sjálfseignarstofnunar.- Engar
- Ekkert
- Ekkert
- Sit sem áheyrnarfulltrúi í fjölskyldunefnd í Mosfellsbæ fyrir Íbúahreyfinguna í Mosfellsbæ.
- Sit í miðstjórn Framsóknarflokksins (hef stigið til hliðar tímabundið vegna framboðs til stjórnlagaþings).
- Er varaformaður Landssambands framsóknarkvenna (hef stigið til hliðar tímabundið vegna framboðs til stjórnlagaþings).
- Sit í Siðanefnd Framsóknarflokksins.
Hægt er að hafa samband við mig með því að senda tölvupóst á kristbjorgthoris@simnet.is með ábendingar og fyrirspurnir. - Vefsíður:
- http://www.kristbjorg.wordpress.com
- Facebook síða framboðsins
Nafnalisti frambjóðenda birtur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:41 | Facebook
Athugasemdir
http://utanthingsstjorn.is/
http://utanthingsstjorn.is/ (IP-tala skráð) 30.10.2010 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.