Fólk borðar ekki falleg orð - lausnir takk!

 Opinn fundur 10.2.2011

Hér getur þú séð viðburðinn á Facebook og skráð þig!


mbl.is Heldur eftir 65.000 krónum af lífeyrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Og er framsókn lausnin á þessu vandamáli?

Sigurður I B Guðmundsson, 9.2.2011 kl. 15:32

2 identicon

Er það vandamál að eiga 65.000 krónur eftir þegar búið er að borga skatta, mat og húsnæði?

HaSt. (IP-tala skráð) 9.2.2011 kl. 15:47

3 identicon

Hið besta mál að Landssamband Fransóknarkvenna skuli ræða þjóðmál og ég efast ekki um að kaffið hjá þeim sé gott og kannski á góðu verði eða hreint gefins.           Í gamla daga buðu framsóknarkvenfélagskonur sínum fundargestum upp á heimabakkelsi en sá tími er trúlega löngu liðinn.

Það sem ég næ, hinsvegar, ekki alveg, a.m.k. ekki við fyrstu lesningu, eru tengslin milli færslunnar og "fréttarinnar" .

Kannski getur einhver útskýrt þetta fyrir mér?

Agla (IP-tala skráð) 9.2.2011 kl. 16:44

4 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

 

Ég átta mig nú ekki alveg á þessarri umræðu og þeirri heilögu hneykslan sem ríður hér yfir bloggheima í tilefni þessarrar fréttar.

Fyrir ekki all löngu olli önnur frétt mikilli hneykslan. Það komst sem sé upp að móðir með tvö börn á framfæri sínu, og þar af annað langveikt, hefði 388 þúsund eftir skatta á mánuði. Hneykslunaralda reið yfir þjóðfélagið og átti nefnd kona nánast líf sitt að verja. Talað var um ráðherralaun, lúxuslíf og svívirðilega misnotkun á bótakerfinu og náði vandlætingin meira að segja inná hið háa alþingi þar sem krafist var breytinga til þess að hindra slíka og aðra eins hneisu...

Nú kemur frétt um barnlausan einstakling sem hefur "aðeins" 305 þúsund á mánuði eftir skatta. Engar ógnar tekjur en benda má á að samkvæmt Starfsgreinasambandinu þá hafa 75% íslenskra launþega minna 267 þúsund á mánuði eftir skatta.

En nú er annað hljóð í strokknum. Fólk fyllist heilagri reiði yfir því hvernig farið sé með þessa konu. Talað er um svartan blett á velferðarkerfinu, hrun velferðarkerfisin, níðingsskap og eignaupptöku svo ekki sé minnst á þær svívirðingar sem látnar eru dynja á Jóhönnu Sig og Steingrími. Vil þó taka fram að ég er enginn stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar.

Hvernig er eiginlega hægt að taka umræðu alvarlega þegar 388 þúsund fyrir tveggja barna móðir er alveg fáránlega of mikið en 305 þúsund fyrir einstakling svívirðilega lágt?

Jón Bragi Sigurðsson, 9.2.2011 kl. 17:07

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Kerfið er allt of dýrt við verðum að fækka toppunum ásamt því að lækka ofurlaun!

Sigurður Haraldsson, 9.2.2011 kl. 21:29

6 Smámynd: Magnús Sigurðsson

"Það sem ég næ, hinsvegar, ekki alveg, a.m.k. ekki við fyrstu lesningu, eru tengslin milli færslunnar og "fréttarinnar" .

Kannski getur einhver útskýrt þetta fyrir mér?"

Agla, ég held að hérna sé verið að auglýsa fund Landssambands Framsóknarkvenna á hagkvæman hátt, sem er hið besta mál.  Það væri kannski ekki svo galið að kíkja í kaffi og athuga hvort heimabakkelsið er liðin tíð, þó það væri ekki til annars. 

Magnús Sigurðsson, 10.2.2011 kl. 07:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband