Fimmtudagur, 26. febrúar 2009
Sjúkdómur Sjálfgræðgiflokksins
Á sama degi má merkja tvö einkenni þess sjúkdóms sem margir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins eiga við að etja. Einkenni sjúkdómsins eru óheiðarleiki, lygar og óréttlæti.
Í fyrsta lagi má sjá hér hvernig Árni Matthiesen lýgur upp í opið geðið á blaðamanni um það hvort hann sé að hætta í stjórnmálum. Sorglegt að fara með þessum hætti en kannski lýsandi fyrir undangengin misseri.
Í öðru lagi samkvæmt þessari Morgunblaðsfrétt þá er betra að "aðeins útvaldir" fái upplýsingar ef fjármálastöðugleiki er í hættu þannig að þeir geti forðað eignum sínum eða skotið þeim undan með öðrum hætti eins og sýnt hefur verið fram á að gerðist fyrir bankahrunið síðasta þar sem milljarðar voru fluttir á milli og greinilegt að hinir útvöldu sem fengu innherjaupplýsingar brugðust fljótt við vátíðindum á meðan saklaus almenningur kom af fjöllum. Þeirra á meðal eldri borgarar þessa lands sem misstu allt sitt í Peningamarkaðssjóðum sem áttu að vera öruggir og horfa því fram á berangursleg efri ár.
Já, Sigurður Kári þetta er efnileg hugmyndafræði og rímar vel við stefnu hins sjúka Sjálfgræðgiflokks.
Gæti kollvarpað fjármálalífinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.