Minningar um Tíbet

Tanggula Pass, hliðið að Tíbet Ég man þegar við fórum yfir síðasta fjallaskarðið sem skilur að Kína og Tíbet á hásléttu Tíbet, Tanggula Pass 5231m, og sáum bænafánana og merkinguna. Ég man hvernig mér leið. Öll eftirvæntingin yfir því að komast á stað drauma minna var að verða að veruleika. Tilfinning sem hafði kviknað þegar ég sá myndina "Seven years in Tibet" (það spillti nú ekki fyrir hvað Brad Pitt var flottur í henni en það er önnur saga). Frá því ég sá myndina fékk ég einhvers konar köllun. Köllun um það að þessari fallegu og fornu menningu yrði ég að kynnast. Ég yrði að kynnast þessari fegurstu trú, búddhatrúnni. Ég yrði að sjá þessa náttúrufegurð og þetta sérstæða fólk með eigin augum. Sjálf er ég oft með rósaroða í kinnum eins og vinir mínir Tíbetarnir. Kannski var ég Tíbeti í fyrra lífi og þess vegna er tilfinningin svona sterk, hver veit? Tilfinninguna elti ég þangað til að þessi draumur varð að veruleika. Draumurinn um að heimsækja Tíbet. Ég fór þangað ásamt systur minni árið 2002. Aðal áfangastaðurinn var Tíbet en við ferðuðumst einnig um Kína, Nepal og Tæland þar sem við vorum á annað borð komnar svona langt.

Lhasa Ég man líka tilfinninguna þegar við loks komum til Lhasa, hæstu höfuðborgar heims (3650m) kl. 7 að morgni eftir gríðarlega erfiða 3 daga þar sem við höfðum setið föst á hásléttu Tíbet vegna vegaframkvæmda. Margir höfðu veikst af háfjallaveiki þar sem það er mjög hættulegt að fara úr 3000m hæð í 5500m án hæðaraðlögunar. Það hefði verið í lagi ef við hefðum farið beint niður aftur. Ég var svo þreytt þegar við komum en hjartað í mér var að springa af spenningi. Ég vissi það að þessari ferð myndi ég aldrei gleyma og festi hvert smáatriði í minni mér.

Ég man eftir Tashi dele kveðju Tíbetanna. Ég man eftir Tashi sem framreiddi dásamlegan mat ásamt manninum sínum og bauð okkur með bros á vör að hætti Tíbeta.

Kidda & Monks Ég man eftir munkunum sem við hittum í einu þorpanna og ég sýndi íslensku póstkortin mín. Hvernig þeir hrúguðust allir í kringum mig og ég fann sterka lyktina af jakuxa mjólkinni og teinu sem þeir höfðu verið að drekka.

Ég man hvað mér þótti hásléttur Tíbet minna mig mikið á Ísland og stundum fannst mér ég vera komin aftur heim.

Tíbet og Ísland eru hreint ekki ólík.

Ég man eftir því hvað ég varð dolfallin þegar ég barði Potala Palace, höll Dalai Lama fyrst augum. Ég sat og nartaði í Kit Kat og gleymdi algjörlega stað og stund. Ég gat ekki hætt að horfa. Ég gat ekki hætt að taka myndir og ég gat ekki hætt að taka videomyndir. Ég var dolfallin. Þetta var eitt af undrum veraldar í mínum augum. Ég man hvað byggingin er stórfengleg þar sem hún stendur á einu hæðinni í Lhasa.

Kínverskur vörður á þaki heimsins Ég man hvað mér sárnaði djúpt inn að hjartarótum við það að sjá minnisvarðann um "FRELSUN TÍBET árið 1959" sem útleggst á íslensku, minnisvarðann um rán Kína á Tíbet með ofbeldi og blóðsúthellingum. Þvílík hræsni. Ég man hvað mér þótti sárt að sjá hvernig borgin Lhasa skiptist í tvennt. Þú ert nánast komin í nýja borg í kínversku Lhasa með því að stíga fimm metra áfram. Þar er allt annar stíll á hlutunum. Nútímalegt og kínverskt. Þar er ekki sami friðsæli andi og er í Lhasa hlutanum. Þannig er það bara.

Ég man hvað ég heillaðist af útliti Tíbetanna. Ég man eftir klæðaburðinum. Ég man eftir fléttunum á konunum sem eru annað hvort 2 eða 106. Ég man eftir fallegu tíbetsku skartgripunum. Ég man eftir purpuraklæddu munkunum sem röltu um göturnar og töluðu sumir meira að segja í gsm síma. Ég man eftir konunum og munkunum sem sneru bænahjólunum sínum jafnóðum og þau röltu um. Þau voru meðal annars að biðja fyrir skordýrunum sem þau komust ekki hjá að kremja á för sinni.

Á þaki heimsins Ég man eftir ferðinni í Potala Palace og ætla að deila með ykkur broti úr ferðasögu minni:

Daginn eftir var stefnan tekin a ad skoda Hollina ad innan.  Vid aetludum ad fara strax kl. niu en thar sem vid hofum ekki beint verid i atvinnuturistagirnum tha vorum vid thar rett fyrir hadegi eftir morgunmat hja Tashi, bankaferd og fleira.  En sem betur fer!  Thvi ju thad kom a daginn ad olikt ollum sem vid hofdum talad vid og hofdu kvartad yfir otholandi traffik af kinverskum turistum tha voru bara engir hopar tharna.  Vid fengum ad upplifa ad vera I Potala palace ad mestu med pilagrimunum sem thangad koma i truarlegum tilgangi og munkunum i sama tilgangi, augljoslega.  Ja vid laeddumst bara med veggjum thvi okkur fannst vid bara vera fyrir thvi thetta var sko ekki eins og flestir turistastadir!  Tharna forum vid upp troppurnar brottu, litlu, fraegu sem morg ykkar hafa sed ur myndinni 'Seven Years in Tibet' (veit nu ekki hvort their toku atridid thar en...) amk tha fengum vid ad sja allt annad en vid attum von a.  Stanslaus umferd af pilagrimum ad kyrja buddhabaenirnar sinar i ollum sinum fallegu klaedum, otrulega fataekt folk sem komid hafdi langan veg med nokkra aura til ad gefa buddha, lyktin af jakuxakertunum alls stadar, ljominn af theim, hljomurinn af theim ad kyrja, buddhalikneskin ur skira gulli, andinn i loftinu...thessu er bara ekki haegt ad lysa thvi midur eins og eg vildi thvi thetta er bara olysanlegt og verdur grafid i minningu okkar systra medal merkustu klukkustundanna i lifi okkar thvi upplifunin var svo sonn, svo einstok og tharna og svona geturdu ekki myndad!  Ja thad er til daemis ekki haegt ad festa lyktina af jakuxavaxinu a videoid, thvi midur!  En eins og eg segi, upplifunin var engu lik og einhver olysanleg heppni olli thvi ad vid fengum alveg frabaera upplifun.  Heldum ad vid myndum skoda yfirgefna holl, minnisvarda fullan af turistum og kinverskum i thokkabot en fengum i stadinn thessa oendanlega, ogleymanlegu stund med heittruudum Tibetum sem standa sinar skyldur vid sina buddhatru, kyrja sinar baenir, hella sinu jakuxavaxi a kertin og gefa buddha sin orfau jiao. 

Ég man líka eftir að fara í sumarhöll Dalai Lama. Það var eins og hann væri enn þar. Hefði bara farið í gær. Þar ríkti óendanleg ró og friður. Í garðinum við höllina þá upplifði ég það sem ég tel vera næst himnaríki á jörð. 

Tíbeti Ég mun aldrei gleyma þessu. Ég hét mér því að fara aftur til Tíbet. Ég hét mér því líka að ég myndi alltaf geyma þá von í hjartanu að geta hjálpað til. Ég hef meira að segja hugsað það hvort ég ætti að hafa samband við Dalai Lama.

Því þykir mér þyngra en tárum taki að vita til þess hvernig ástandið er í Tíbet í dag og íslensk stjórnvöld skuli skella við skollaeyrum af ótta sínum við það að styggja kínverska risann og taka viðskiptahagsmuni og aðra pólitíska hagsmuni fram fyrir mannréttindi og sjálfstæðisbaráttu Tíbeta. Við eigum mun meira sameiginlegt með Tíbetum en fólk gerir sér grein fyrir. Við erum afskekkt þjóð eins og Tíbetar sem býr í undurfagurri náttúru. Við fengum sjálfstæði en þeir hafa misst sitt.

KiddaStöndum nú í lappirnar og látum okkur málin varða. Það er með hreinum ólíkindum hvernig heimsbyggðin lokar augunum og beygir sig eins og hóra undir stórveldið Kína. Að sumir skuli kaupa áróður Kínverja er líka með ólíkindum. Hver heldur að þjóð sem missir sjálfstæði sitt eftir blóðuga bardaga álíti sig frelsaðan af sama aðila og hafi gengið inn í gin risans með glöðu geði? Hver heldur að þjóð þar sem langstærsti hlutinn iðkar hina friðsömustu trú heimsins búddhatrú þar sem lífið sjálft er ofar öllu sé þjóð hryðjuverkamanna? Það er fjarstæða og nær ekki nokkurri átt. Sýnum kjark, þor og dug. Við erum ekki þekkt fyrir annað.

Hvert einasta okkar getur gert gagn. Allt frá því að taka þátt í mótmælafundum, skrifa á undirskriftalista, skrifa bréf, beita pólitískum þrýstingi í það að kveikja á kerti og biðja fyrir Tíbetum.

Bænafánar og hluti hópsins á fjallaskarði Ég hef kveikt á kerti fyrir þá og ég hef flaggað bænafánum mínum fyrir þeim. Bænafáni er marglitrir  fánar sem á eru áletraðar bænir og er hann m.a. settur efst uppi á fjallaskörðunum þannig að þegar vindurinn blæs um þá þá flyst bænin til þess sem hún er ætluð. Þetta er líka til þess að óska öðrum ferðalöngum á erfiðum ferðum sínum bæna og góðrar lukku.

Nú skulum við flagga fyrir Tíbetum og óska þeim góðrar lukku og góðrar ferðar í vegferð sinni að FRELSI.

FRJÁLST TÍBET.

Kristbjörg Þórisdóttir, vinur Tíbet Smile.

Tíbet kort

mbl.is Kínverjar segja Tíbeta skipuleggja árásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áhrifarík færsla hjá þér Dr.Feelgood jr.alltaf jafn fyndið, væri til í að lesa alla ferðasöguna aftur 

Alla (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 14:31

2 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Takk fyrir þessa fallegu færslu... ég trúi því að okkur muni takast að fá heiminn til að horfa í átt til Tíbet og taka afstöðu með þeim... ég sendi bréf á alla þingmenn í gærkvöld og snemma í morgunn - hef bara fengið tvö svör... um að gera að þrýsta á sína vini í pólitíkinni ... spyrja hvort þeir hafi ekki örugglega fengið bréfið :) Bjarni Harðar svaraði og ætlar að taka þetta upp í þingsölum... vona að því verði sem fyrst...

Birgitta Jónsdóttir, 1.4.2008 kl. 14:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband