Ríkisstjórn Íslands ætlar að fljúga hátt á erfiðistímum

Ég taldi nú að stefnan væri að draga saman í fjármálum landsmanna og eflaust nokkuð verið grátið yfir þeim einkaþotum sem menn hafa þurft að leggja undanfarið.

Sá gállinn virðist ekki vera á ríkisstjórn Íslands. Það kemur kannski ekki á óvart þegar þau telja nauðsynlegt að hækka útgjaldaramma fjárlaga um 20% á milli ára á erfiðum tímum í efnahagsmálum.

Góða ferð, verst að þau skuli ekki njóta þess að fljúga með almenningi og nýta þannig tímann í samskipti við kjósendur sína. 

Þetta er kannski bara aprílgabb eða hvað? Þessu er í það minnsta ekki haldið á lofti á mbl vefnum. Áhugavert.

 

Vísir, 01. apr. 2008 17:47

Einkaþota Geirs og Ingibjargar kostar sex milljónum meira en áætlunarflug

mynd

Andri Ólafsson skrifar:

Það kostar skattgreiðendur tæpum sex milljónum meira að ferja Geir h. Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og föruneyti þeirra á Nato fund með einkaþotu en í almennu flugi.

Gréta Ingþórsdóttir, aðstoðarkona forsætisráðherra, sagði í samtali við Vísi í dag að kostnaðarmuninn á ferðinni miðað við áætlunarflug óverulegan. Jafnframt bætti hún við að þetta verið nauðsynlegt þar sem þurft hefði að gista í London yfir nótt ef farið hefði verið með almennu flugi.

Þetta er ekki alveg rétt hjá Grétu.

Samkvæmt upplýsingum frá dohop.com leitarvélinni er hægt að fljúga frá Keflavík til Heathrow og þaðan til Búkarest á miðvikudag og svo til baka á föstudag fyrir 131 þúsund krónur á mann. Verðið miðast við að flogið sé með Icelandair til London og British Airwaves til Búkarest.

Samkvæmt upplýsingum Vísis er 10 manna föruneyti frá forsætis- og utanríkisráðuneytinu á leiðinni til Búkarest og samanlagður kostnaður vegna ferðar af þessu tagi ætti því að vera rúmar 1300 þúsund krónur, ef skynsamlega væri haldið utan um budduna það er að segja.

Eins og Vísir sagði frá í dag ákváðu Geir og Ingibjörg hins vegar að ráðlegra væri að leigja einkaþota frá fyrirtækinu Icejet og fljúga beint til Búkarest.

Samkævmt upplýsingum Vísis er Dornier einkaþota af því tagi sem Geir og Ingibjörg hafa leigt um sex tíma að fljúga til Búkarest og aðra sex að fljúga til baka. Klukkutíminn er leigður út af Icejet, samkvæmt upplýsingum Vísis á um 5 þúsund evrur.

Það þýðir að ferðin fram og tilbaka kostar 60 þúsund evrur eða um 7.2 milljónir íslenskra króna.

Það þýðir jafnframt að ef tíu eru í föruneyti Geirs og Ingibjargar sé kostnaðurinn á hvern og einn um 720 þúsund krónur.

Munurinn á því að föruneyti Geirs og Ingibjargar ferðist með einkaþotu en ekki í almennu flugi er því 5.9 milljónir íslenskra króna.

(tekið af www.visir.is)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Hvað munar grundina um grasið?   -  en eitthvað er þeim nú farið að fatast flugið í reikningskúnstum í Stjórnarráðinu.

Pálmi Gunnarsson, 2.4.2008 kl. 11:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband