Glæsilegur fulltrúi okkar

Mikið líst mér vel á það að sjá hana Eygló Harðardóttur bjóða sig fram í efsta sæti listans í Suðurkjördæmi.

Þar fer glæsilegur fulltrúi Framsóknar.

Eygló hefur þá nýju fersku rödd sem þarf í íslensk stjórnmál. Hún er framúrskarandi einstaklingur. Það er gott að sjá svo öflugar konur stíga fram því Framsókn vill að sjálfsögðu halda þeirri sérstöðu sinni að vera sá flokkur sem hefur sýnt jafnrétti í reynd og treyst konunum sínum til jafns við karlana. Sjaldan hefur það verið mikilvægara en einmitt nú að á þingið veljist sem breiðastur hópur fólks úr öllum áttum þjóðfélagsins. Það hefur verið offramboð af miðaldra, hvítum, ófötluðum karlmönnum á þingi.

Til hamingju með framboðið Eygló.


mbl.is Eygló býður sig fram í fyrsta sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband