Þetta eru góðar fréttir fyrir Íslendinga :)

Ég er í skýjunum að heyra að Dalai Lama skuli ætla að koma til Íslands. Ég trúði því vart fyrst þegar ég heyrði af þessu.

Hann gæti ekki komið á betri tíma fyrir okkur Íslendinga því speki hans hefur sjaldan átt eins vel við og núna.

Ég vona að íslensk stjórnvöld móti stefnu í þá átt að leggja Tíbetum stuðning við að endurheimta glatað sjálfstæði sitt.

Af því tilefni endurbirti ég hér grein sem birtist í Morgunblaðinu eftir mig í fyrra.

Miðvikudaginn 14. maí, 2008 - Aðsent efni

Opnum augu fyrir Tíbet

Kristbjörg Þórisdóttir skrifar um Tíbet

Kristbjörg Þórisdóttir Kristbjörg Þórisdóttir

Kristbjörg Þórisdóttir skrifar um Tíbet: "Hvert er gengið á mannréttindum í dag? Hefur það fallið jafnmikið og gengi krónunnar? Er betra að horfa í hina áttina en opna augun fyrir Tíbet?"


Tanggula Pass, hliðið að TíbetÉG MAN enn tilfinninguna, sex árum síðar, þegar við komum loksins að hliði Tíbets, Tanggula Pass, í 5136 metra hæð yfir sjávarmáli. Á móti okkur tóku flöktandi litríkir bænafánar í þunnu fjallaloftinu. Frá því ég heyrði sorgarsögu Tíbeta hefur það verið draumur minn að heimsækja Tíbet og kynnast þjóðinni, búddatrúnni og menningu hennar. Þessi afskekkta þjóð býr umlukin hæstu fjöllum heims, Himalaya-fjöllunum, og liggur Everest, hæsta fjall heims, á mili Tíbets og Nepals. Þennan dag rættist draumur minn.

Eftir hrakningar á hásléttunni komst ferðahópurinn loksins til Lhasa. Lhasa er þak heimsins í bókstaflegri merkingu og stendur í 3.650 metra hæð yfir sjávarmáli. Hún hefur verið nefnd staður guðanna, enda draumkenndur og dularfullur staður. Háslétta Tíbets er ekki ýkja ólík Íslandi og stundum fannst mér ég vera komin heim.

Í mér bærðust tvíbentar tilfinningar. Gleðitilfinning yfir að vera komin til lands drauma minna en jafnframt sorgartilfinning yfir því að upplifa og sjá með eigin augum hvernig málum er ástatt. Höfuðborgin skiptist í tvo ólíka hluta, tíbetska hlutann og kínverska hlutann. Í Tíbet og Lhasa er mikið af aðfluttum Kínverjum og stefnir í að Tíbetar verði minnihlutahópur í sínu eigin landi ef þeir eru ekki þegar orðnir það. Kínverskar fjölskyldur mega eiga tvö börn í Tíbet en einungis eitt í Kína og er þannig markvisst verið að fjölga Kínverjum í Tíbet. Sagan sýnir að frá innrás alþýðuhersins árið 1950 þegar Tíbet var innlimað sem hérað í Kína hefur markvisst verið reynt að þróa menningu og lifnaðarhætti Tíbeta í átt að því sem tíðkast í Kína. Tíbetar hafa mátt sæta ofsóknum fyrir trú sína og trú á leiðtoga sinn, Dalai Lama, sem hraktist í útlegð til Indlands árið 1959. Í gegnum tíðina hafa Tíbetar nokkrum sinnum reynt að berjast fyrir sjálfstæði sínu með uppreisnum en það er andstætt lífsskoðunum búddista að beita vopnum og því hefur mótstaða þeirra verið árangurslaus og snöggt og grimmilega verið brotin á bak aftur af Kínverjum. Það er kaldhæðni fólgin í því að á móti helgasta stað Tíbeta, Potala, höll Dalai Lama, hafa kínversk stjórnvöld reist minnisvarða um „frelsun Tíbets". Þetta eru fullkomin öfugmæli. Sú milljón Tíbeta sem fallið hafa í blóðugum bardögum síðustu fimmtíu ár, öll klaustrin sem lögð hafa verið í rúst, heilagar bækur sem hafa verið brenndar og djúpt sorgarmark sem merkja má í andliti hvers Tíbeta ber vott um allt annað. Það ber vott um kúgun kínverskra stjórnvalda og rán þeirra á sjálfstæði Tíbeta. Þeir sem ekki hafa farið í útlegð til annarra landa halda áfram að snúa bænahjólunum sínum, iðka trú sína og vona. Búddatrúin boðar endurholdgun þannig að samofin henni er djúp virðing fyrir öllu formi lífs og biðja munkarnir fyrir skordýrunum sem þeir komast ekki hjá að kremja á för sinni. Þannig er með ólíkindum að einhver skuli trúa áróðri kínverskra stjórnvalda um að munkar skuli vera hryðjuverkamenn í bleikum klæðum sem séu líklegir til sjálfsmorðsárása. Það er þversögn við allt það sem líf Tíbeta gengur út á.

Á þaki heimsinsÉg hef gengið um höll Dalai Lama. Sú upplifun verður fest í minni mínu að eilífu. Eða eins og ég lýsti í ferðasögu minni: „Stanslaus umferð af pílagrímum að kyrja búddabænir sínar í öllum sínum fallegu klæðum, ótrúlega fátækt fólk sem komið hafði langan veg með örfá jiao til að gefa Búdda, lyktin af jakuxakertunum alls staðar, ljóminn af þeim, búddalíkneski úr skíra gulli og andinn í loftinu". Í garði þeim sem stendur hjá sumarhöll Dalai Lama fann ég fyrir himnaríki á jörð.

Tíbetar eru einstök þjóð sem búið hefur einangruð innan stórfenglegrar náttúru. Þeir eru þjóð sem eitt sinn var frjáls og iðkaði trú sína og átti friðsamt líf án afskipta umheimsins. Þeir eiga auðlindir sem aðrir ásælast. Þeir eru fámenn þjóð. Á margan hátt eru þeir ekki ólíkir okkur Íslendingum. Við erum einangruð, fámenn þjóð sem býr á einu fegursta landi heims og búum yfir náttúruauðlindum. Við vorum eitt sinn hluti af stærra veldi, Danaveldi. Nú erum við sjálfstæð þjóð.

Það er því þyngra en tárum taki að íslenskir ráðamenn skuli líta undan þegar málefni Tíbets ber á góma. Það er betra að horfa í hina áttina af ótta við að styggja stórveldið Kína og missa af viðskiptasamböndum og stuðningi við framboð í Öryggisráðið. Er þetta gengið á mannréttindum í dag? Það hefur þá fallið álíka og gengi krónunnar. Ætlum við að selja sál okkar og sannfæringu á þessu verði?

Hvernig liði okkur ef Danir myndu ræna okkur sjálfstæðinu með blóðugum átökum og innlima okkur sem hluta Danaveldis? Ef þeir flyttu til Íslands í stórum hópum og stuðla að fjölgun sinni með brögðum og markvisst reyna að breyta menningararfi okkar, trú og tungumáli? Myndum við þá vilja að þjóðir heimsins litu undan og beygðu sig undir stórveldið?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og ríkisstjórn Íslands: Mynduð þið þá styðja stefnuna „Eitt Danaveldi" án þess að blikna? Á hvaða forsendum styðjum VIÐ Íslendingar „Eitt Kína"? Við skulum ekki gera sömu mistökin aftur.

Nú er tími Tíbeta kominn. Frjálst Tíbet.

Höfundur er nemi og meðlimur í samtökunum Vinir Tíbets


mbl.is Dalai Lama kemur til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær grein hjá þér. Ég vona að stjórnvöld taki vel á móti honum í sumar og sendi þannig skýr skilaboð til Kína.

Arngrímur Sigurðsson (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband