2009 kvatt og 2010 boðið velkomið!

 

Nú er síðasti dagur ársins. Hérna sit og ég fylgist með Kryddsíldinni með öðru auganu. Svo mikilvægt tel ég þetta ár hafa verið að ómissandi sé að horfa um öxl og skoða hvað gekk á og hvert við erum að fara. Þessi mál og þekking munu fara með manni inn í framtíðina, á því leikur enginn vafi.

Árið 2009 hefur verið erfitt ár, bæði fyrir þjóðina og eins fyrir mig persónulega. Ég mun því glöð kveðja það á miðnætti og taka brosandi á móti árinu 2010.

Mér er efst í huga þakklæti til alls þess fólks sem ég hef verið svo lánsöm að fá að umgangast, njóta og læra af á þessu ári. Sérstaklega þeirra sem eru hluti af mínum fjársjóði, fólki sem komið er til að vera og fylgja mér í gegnum þetta líf. Stundum veltir maður því fyrir sér hvað maður hafi gert til þess að verðskulda þann auð. Sá fjársjóður sem við eigum í hverju öðru er ómetanlegur með öllu.

Þegar upp er staðið er það samstaða okkar og virðing fyrir hverju öðru og skoðunum hvers annars sem hefur úrslitaáhrif. Því miður hefur skort á hana og sjálfur hefur maður látið hitann hlaupa með sig í gönur. Varðandi pólitíkina þá föllum við oft niður í persónulegar skotgrafir í stað þess að rökræða málin og ná sátt sem allir geta sæst á á miðri leið.

En eftir nokkrar klukkustundir tekur við nýtt ár.

Ég hef fulla trú á því að árið 2010 verði upphafið að betra Íslandi. Nú tel ég að rykið af hruninu sé að verða sest og almenningur fari að sjá eitthvað gerast, breytingar. Ég trúi ekki öðru en nú fari rannsókn að byrja að skila niðurstöðum og menn þurfi að axla ábyrgð á mistökum og misgjörðum sínum. Ég treysti því svo að í sameiningu getum við byggt okkur nýtt regluverk, tryggt eftirlit og gefið okkur öllum von. Ég vil trúa því að við föllum ekki í sama farið heldur verði þrýstingur frá þjóðinni um ný vinnubrögð á nýju Íslandi.

En þetta gerist ekki nema við tökum öll þátt í þessu. Verkefni okkar næstu ár eru ærin. Aldrei hefur þurft að standa eins dyggan vörð um þá sem minna mega sín og um fólkið í landinu. Þar er hætta á ferðum og þar þurfum við að treysta hvert annað. Aldrei hefur eins mikið þurft á hugviti hvers Íslendings að halda til þess að leggja sitt á vogarskálarnar um það hvernig við eigum að byggja hér upp samfélagið á ný og læra af reynslunni. Ég hef trú á því að þegar upp er staðið munum við þrátt fyrir hörmungar og erfiðleika byggja hér betra samfélag en það græðgis- og óreiðu- samfélag sem hér var orðið.

Gleðilegt ár kæru vinir og megið þið öll njóta ljóss og friðar á nýju ári.

Saman stöndum vér en sundruð föllum vér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Falleg færsla hjá þér elskan!

Gleðilegt ár kæra vinkona og takk fyrir það gamla. Hef fulla trú að næsta ár verði gott, bæði persónulega og samfélagslega:))

Linda (IP-tala skráð) 31.12.2009 kl. 15:09

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Gleðilegt ár frænka.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 31.12.2009 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband