Votta samúð

Ég votta ábúendum innilega samúð mína við þennan hryggilega atburð.

Það er sumt sem við höfum því miður enga stjórn á í lífinu og svona atburður er einn þeirra.

Tjónið er gríðarlega mikið en sennilega tekur tilfinningahliðin þyngsta tollinn.

Að hafa umgengist nautgripi og kýr er ein sú besta lífsreynsla sem ég hef átt. Þau eru miklir persónuleikar hvert og eitt og það er mikið áfall á við að missa marga dýrmæta vini og félaga í slíku slysi.

Guð veri með ábúendum í þessari raun.


mbl.is Missti 120-130 nautgripi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband